Lausar lóðir

Í VINNSLU Lausar lóðir í nýrri íbúðarbyggð í Þingborg

Við Þingborg í Flóahreppi gefst nú tækifæri til að byggja nýtt heimili í fallegu, grónu og kyrrlátu umhverfi  

Íbúðarbyggðin er skipulögð með fjölbreytt heimili og vandað búsetuumhverfi í huga. Í fyrsta áfanga eru lausar lóðir fyrir einbýlishús, parhús og raðhús. Áhersla er lögð á að byggðin falli vel að landslagi og náttúru og haldi því friðsæla dreifbýlisyfirbragði sem einkennir Flóahrepp.

Rými fyrir gott fjölskyldulíf

Í Þingborg sameinast nálægð við náttúruna og greiðar samgöngur. Aðkoma að svæðinu er frá Suðurlandsvegi um Þingborgarveg og stutt er í verslun, þjónustu og fjölbreytt atvinnutækifæri á nærliggjandi svæðum.

Skipulag hverfisins gerir ráð fyrir opnum og grónum svæðum. Gamall árfarvegur verður nýttur sem hluti af grænu útivistarsvæði og göngustígar tengja íbúðargöturnar við opin svæði innan og umhverfis byggðina.

Fjölbreyttir byggingarmöguleikar

Í fyrsta áfanga eru átta lausar lóðir með byggingarheimildum fyrir eina til fjórar íbúðir. Byggingarmagn er frá 269 m² upp í 833 m².

 

Nánari upplýsingar um heimilt byggingarmagn og nýtingarhlutfall má nálgast hér: Byggingarmagn og nýtingarhlutfall lóða

Deiliskipulagið býður upp á ákveðinn sveigjanleika í húsagerðum og útfærslu bygginga. Markmiðið er að skapa fjölbreytta og fallega byggð þar sem hús og lóðir falla vel að umhverfinu. Gert er ráð fyrir skjólgóðum útivistarsvæðum á lóðum og að byggingar taki mið af landi, birtu og sólaráttum.

Hér má nálgast greinargerð deiliskipulags fyrir svæðið: Skipulagsgreinargerð íbúðarbyggðar við Þingborg

Hér má nálgast deiliskipulagsuppdrátt. Athugið að ef óverulegt misræmi er á milli deiliskipulags og lóðarblaða er varðar legu eða stærð lóðar þá gilda lóðablöðin umfram deiliskipulagið.

Innviðir hverfisins

Svæðið tengist rafveitu RARIK og vatnsveitu sveitarfélagsins. Sameiginlegt fráveitukerfi er fyrir íbúðarbyggðina og liggja helstu lagnaleiðir liggi í og meðfram götum. Allar lóðir tengjast við Hitaveitu Hraungerðishrepps. Ljósleiðarakerfi er í hverfinu.

Gönguleiðir tengja hverfið innbyrðis og við nærliggjandi útivistarsvæði. Áhersla er lögð á snyrtilegt yfirbragð, lágstemmda lýsingu og vandaðan frágang húsa og lóða.

Gert er ráð fyrir því að yfirborðsfrágangur á götum í 1. áfanga með malbiki og kantsteinum klárist haustið 2026.

Gjöld vegna fráveitu, gatnagerðargjalda, vatnsveitu, ljósleiðara og hitaveitu eru innheimt af Flóahreppi. Gjöld vegna tengingu við rafveitu RARIK fer skv. gjaldskrá RARIK hverju sinni. 

Byggðu framtíðarheimilið í Þingborg

Þingborg hentar þeim sem vilja meira rými, rólegt umhverfi og nálægð við náttúruna – án þess að vera langt frá þeirri þjónustu og atvinnu sem nágrennið hefur upp á að bjóða  

Leikskólinn Krakkaborg stendur við hlið hverfisins en þar er tekið við börnum frá 12 mánaða aldri. Sjá nánar hér: Leikskólinn Krakkaborg

Flóaskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Nemendur verða keyrðir með skólabíl frá Þingborg og að Flóaskóla. Sjá nánar hér: Flóaskóli

Kynntu þér lausar lóðir, úthlutunarskilmála og umsóknarferlið hjá Flóahreppi.

Nánari upplýsingar um byggingarheimildir, kvaðir og útfærslu einstakra lóða koma fram í gildandi deiliskipulagi, mæliblöðum og úthlutunarskilmálum. Upplýsingar um byggingarmagn geta tekið breytingum við endanlega gerð mæliblaða.

 

 

Hægt er að senda umsóknir um lóðir á umsóknareyðublaði hér fyrir neðan. Úthlutun lóða fer samkvæmt gildandi reglum um úthlutun lóða í Flóahreppi og þarf að staðfesta úthlutun á sveitarstjórnarfundi hjá sveitarstjórn Flóahrepps.

 

 

Lausar lóðir - Lóðablöð

Íbúðabyggð Þingborg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðrar upplýsingar

 

Útreikningar á gatnagerðargjöldum

Reglur um úthlutun lóða í Flóahreppi

Samþykkt um gatnagerðargjöld í þéttbýli Flóahrepps

Gjaldskrá Hitaveitu Hraungerðishrepps

Gjaldskrá vatnsveitu

Gjaldskrá fráveitu og meðhöndlunar Seyru

Gjaldskrá UTU vegna byggingarheimilda og byggingarleyfa

Gjaldskrá Flóaljóss

Gjaldskrá Leikskólans Krakkaborgar

Gjaldskrá Flóaskóla vegna frístundar

Álagningaforsendur fasteignagjalda

 

 

Umsóknareyðublað má finna hér

 

Umsóknum skalað skila á netfangið floahreppur@floahreppur.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins í Þingborg