Viðhald í vatnsveitu - möguleg röskun á afhendingu vatns

Vegna viðhaldsvinnu við vatnsveitu Flóahrepps má búast við einhverjum truflunum á afhendingu á köldu vatni. Þetta á við um þá sem tengjast við eldri stofnlögn sem liggur með hringveginum.

Um tímabundið ástand er að ræða og stefnt að því að klára viðhaldsvinnu í dag.