Vetrarstarf Þjótanda 2026–2027
Vetrarstarf Ungmennafélagsins Þjótanda er að hefjast. Boðið verður upp á fjölbreyttar og skemmtilegar íþróttaæfingar fyrir börn, ungmenni og fullorðna í vetur. Æfingarnar eru gjaldfrjálsar og nýir þátttakendur alltaf velkomnir.
Æfingar fyrir 2.–4. bekk
Æfingar fyrir nemendur í 2.–4. bekk verða á föstudögum innan stundatöflu Flóaskóla. Þær hefjast að loknum hádegismat og standa til kl. 13:45.
Æfingarnar fara fyrst fram á íþróttasvæðinu við Flóaskóla en flytjast inn í Þingborg þegar líða tekur á haustið. Nánari upplýsingar um flutninginn verða auglýstar síðar.
Öllum er velkomið að prófa að vera með. Lokaskráning fyrir veturinn þarf að berast fyrir 18. september á netfangið orvar@floaskoli.is.
Þjálfari er Örvar Rafn Hlíðdal.
Æfingar fyrir 5.–6. bekk
Æfingar fyrir 5.–6. bekk verða á miðvikudögum í og við Þingborg. Fyrsta æfing verður 9. september.
Rúta flytur þátttakendur frá Flóaskóla kl. 13:40 og æfingu lýkur kl. 15:30. Foreldrar sækja börnin í Þingborg og eru vinsamlega beðnir um að mæta tímanlega.
Skráning þarf að berast fyrir fyrstu æfingu á netfangið gbriets@gmail.com svo hægt sé að skipuleggja aksturinn.
Þjálfarar eru Guðmunda Bríet Steindórsdóttir og Hanna Dóra Höskuldsdóttir.
Æfingar fyrir 7.–10. bekk
Æfingar fyrir 7.–10. bekk verða á miðvikudögum kl. 15:30–17:00 í og við Þingborg. Fyrsta æfing verður 9. september.
Foreldrar sjá um akstur á æfingar og sækja að þeim loknum. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram.
Þjálfari er Guðmunda Bríet Steindórsdóttir.
Íþróttaskóli Þjótanda
Íþróttaskóli Þjótanda verður í Þingborg kl. 10:00–11:00 fyrir börn fædd 2021–2024. Ekki þarf að skrá þátttöku – börn og foreldrar mæta einfaldlega með góða skapið og njóta samverunnar.
Íþróttaskólinn verður þessa daga:
27. september
11. október
25. október
8. nóvember
22. nóvember
6. desember
Þjálfarar eru Guðmunda Bríet Steindórsdóttir og Hanna Dóra Höskuldsdóttir. Nánari upplýsingar fást hjá hannadorahoskulds@gmail.com.
Fullorðinsæfingar
Fullorðinsæfingar Þjótanda hefjast í Þingborg miðvikudaginn 30. september kl. 20:00. Allir 18 ára og eldri eru velkomnir.
Æfingar verða haldnar:
30. september
14. október
28. október
11. nóvember
25. nóvember
Hanna Dóra og Guðmunda verða með yfirumsjón. Nánari upplýsingar fást hjá hannadorahoskulds@gmail.com.
Fjölbreytt starf og spennandi mót
Á Þjótandaæfingum verður lögð áhersla á fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar þar sem leikjum og frjálsum íþróttum er blandað saman.
Allar íþróttaæfingar Umf. Þjótanda eru gjaldfrjálsar. Foreldrar eru þó hvattir til að greiða árgjald félagsins þegar það verður innheimt.
Í vetur verða einnig haldnir Héraðsleikar HSK og Aldursflokkamót HSK. Þetta eru skemmtileg mót þar sem margir íþróttagarpar hafa tekið sín fyrstu skref í keppni. Þjótandi stefnir að því að mæta til leiks með öflugan keppendahóp að vanda.
Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt í starfi félagsins. Nýir félagsmenn eru ávallt hjartanlega velkomnir.
Frekari upplýsingar veitir Guðmunda Bríet Steindórsdóttir, formaður Umf. Þjótanda, á netfanginu gbriets@gmail.com.