Umsóknir um hvatagreiðslur þurfa að berast fyrir 1. nóvember

Vakin er athygli á að umsóknir um hvatagreiðslur þurfa að berast eigi síðar en 1. nóvember.

Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Umsóknir sem sendar eru inn og eru yfir 60.000 kr og ná yfir tímabilið haust og vor gilda fyrir vor líka þ.e einungis þarf að skila einni umsókn ef slíkt á við.

Hvatagreiðslur geta orðið allt að 30.000 kr að hausti og 30.000 kr að vori eða alls 60.000 kr á ári.

Í gildandi reglum geta börn og ungmenni 5-18 ára sótt um. Sveitarstjórn vinnur að uppfærslu á reglum þannig að þær gildi fyrir öll börn 0-18 ára og er reiknað með að uppfærðar reglur taki gildi frá 1. janúar 2027.

Sjá nánar hér: Hvatagreiðslur | Flóahreppur