Umhverfisnefnd Flóahrepps óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Flóahrepps 2026. Tilnefningar skulu berast eigi síðar en 1. júní.
Sveitarstjórn samþykkti nýlega nýjar reglur um umhverfisverðlaun sem umhverfisnefnd sveitarfélagsins hafði komið með tillögur um.
Reglurnar má nálgast hér: Reglur um val á umhverfisverðlaunum í Flóahreppi
Umhverfisverðlaun geta hlotið einstaklingar, heimili, fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök með lögaðsetur í sveitarfélaginu sem þykja hafa skarað fram úr eða verið til fyrirmyndar í umhverfismálum svo sem með snyrtilegri umgengni, fallegum mannvirkjum og/eða athyglisverðra aðgerða á sviði umhverfismála það árið eða undangengin ár. Hægt er að veita verðlaunin oftar en einu sinni til sama aðila en miða skal við að ekki líði skemmri tími en 6 ár á milli veitinga verðlaunanna á sama stað.
Ein verðlaun eru veitt á hverju ári og skal veiting skiptast á milli eftirfarandi flokka á milli ára:
• Ártöl sem enda á sléttum tölum: Veðlaun veitt til lögbýlis eða íbúðarhúss
• Ártöl sem enda á oddatölum: Verðlaun veitt til fyrirtækis, félagasamtaka eða lögaðila.
Við val á aðilum varðandi umhverfisverðlaun er hægt að hafa margt til hliðsjónar, má þar m.a. nefna
eftirfarandi atriði hvað varðar val á lögbýli eða íbúðarhúsi:
Lögbýli/íbúðarhús:
• Húsakosti vel við haldið.
• Þurrt og hreint umhverfis húsakost.
• Heimreiðar snyrtilegar, kantar hreinsaðir.
• Girðingar snyrtilegar og vel við haldið.
• Vélar og áhöld á ákveðnum stað, uppraðað á snyrtilegan hátt.
• Vel hirtur heimagarður, skjólbelti eða skógarreitir.
• Almenn snyrtimennska og alúð sýnileg við að fegra umhverfið.
Verðlaunin ásamt viðurkenningarskjali verða veitt vinninghöfum á 17. júní hátíð innan Flóahrepps í
samstarfi sveitastjóra og fulltrúa frá umhverfisnefnd.
