Til íbúa Flóahrepps frá stjórn Orkugerðarinnar

Að beiðni formanns stjórnar Orkugerðarinnar er eftirfarandi hér með komið á framfæri við íbúa Flóahrepps vegna málefna Orkugerðarinnar:

 

Efni: Orkugerðin og lykt frá starfseminni

Til upplýsinga fyrir nágranna,

Því miður hefur ekki enn tekist að koma í veg fyrir að ólykt berist frá starfsemi Orkugerðarinnar þrátt fyrir margs konar ráðstafanir í þá veru.

Rétt er að rifja upp helstu breytingar og atriði sem hafa áhrif á það að lykt berst frá starfseminni.

Seinni hluta árs 2022 var ákveðið að stækka og endurbæta húsnæði og búnað verksmiðjunnar. Stækkun var að mestu lokið undir lok árs 2023.

Hluti af þessari stækkun var að kaupa lyktareyðingarkerfi sem byggist á efnameðhöndlun. Í stórum dráttum þá er ferlið þannig að sláturúrgangur er mulinn og dælt í 3 sjóðara sem sjóða vatn og vökva frá og eftir situr grautur sem er svo aðskilinn í mjöl og fitu.

Aðal lyktaruppsprettan er gufan frá þessum sjóðurum. Hún fer í gegnum kæli sem þéttir vatni í gufunni. Það vatn fer í lokuðu kerfi í siturlögn og gefur ekki frá sér lykt. Það sem ekki þéttist fer í gegnum umrætt lyktareyðingarkerfi.

Mælingar sýna að það fjarlægir um 90% af ammoníaki (NH3) og um 98% af brennisteinsvetni (H2S) sem eru þau gös sem gefa mesta lykt. Það má því segja að þetta kerfi leysi þennan þátt lyktarinnar nokkuð vel en það dugar ekki til.

Innan verksmiðjunnar er sterk kjötmjölslykt og það er útblástur hennar sem ætla má að trufli nágranna mest. Það má meðal annars ráða af því að um helgar er verksmiðjan er ekki í gangi hefur samt verið kvartað undan lykt sem kemur þá frá loftræstingu hússins og þessu innilofti.

Þessi lykt er meðhöndluð með Ozontæki sem dælir ozoni inn í útblásturinn en dugar greinilega ekki til að fjarlægja lyktina.

Stjórn félagsins vill leysa þessi mál í eitt skipti fyrir öll svo ekki verði truflandi áhrif á nágrennið frá starfsemi Orkugerðarinnar. Búið er að skoða tvær sambærilegar verksmiðjur erlendis til að finna viðunandi lausn. Jafnframt hefur finnskt ráðgjafafyrirtæki verið ráðið til vinnu og það skoðað Orkugerðina og unnið úttekt og tillögur um breytingar til að eyða lykt frá verksmiðjunni.

Sú lausn sem farið verður í byggist á efnameðhöndlun og stórum svokölluðum biofilter sem eyðir allri lykt. Samhliða verður loftræsting innan verksmiðjunnar endurbætt. Það er raunhæft að haustið 2027 þá verði þessari framkvæmd að fullu lokið.

Í skammtímanum verður farið í aðrar breytingar sem ættu að draga úr lykt. Það markverðasta er að lögð verða ný gólf í vinnslusal verksmiðjuna á næstu mánuðum sem auðvelda þrif og draga úr þessari kjötmjölslykt sem er innan verksmiðjunnar og berst að hluta út.

Stjórn Orkugerðarinnar mun upplýsa nágranna á 3. mánaða fresti um það hvernig þessum úrbótum framvindur uns þeim verður lokið.

 

F.h. stjórnar Orkugerðarinnar

Steinþór Skúlason stjórnarformaður