Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk. klukkan 12:00. Yfirkjörstjórn Flóahrepps mun taka á móti framboðum. Yfirkjörstjórn tekur einnig á móti gögnum rafrænt á netfangið oli@bssl.is
Hverjum framboðslista skal fylgja:
- Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra, samkvæmt skrá dómsmálaráðuneytisins.
- Ef stjórnmálasamtök hafa ekki listabókstaf skal óska eftir honum við yfirkjörstjórn sveitarfélagsins.
- Upplýsingar um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans, ásamt samþykki þeirra.
- Framboðslisti ásamt undirrituðu samþykki frambjóðenda fyrir því að fara í framboð.
- Meðmæli með framboðinu – að lágmarki 20 og hámarki 40. Hægt er að safna meðmælum rafrænt á Ísland.is Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
- Heimilt er að safna meðmælum á pappír. Mælst er til þess að framboð slái meðmælin inn í rafræna meðmælakerfið. Skila þarf inn frumriti til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.
Ef spurningar vakna hafið samband við formann yfirkjörstjórnar á netfangið oli@bssl.is eða í síma 895 1558 (Ólafur)
Yfirkjörstjórn Flóahrepps
Ólafur Þór Þórarinsson, Tindum
Dagbjartur Ketilsson, Brúnastöðum
Rannveig Árnadóttir, Hófgerði