Upplýsingar um sumarlokun skrifstofu í Þingborg

Á fundi sveitarstjórnar þann 6. júní var samþykkt að sumarlokun skrifstofu í Þingborg verði eftirfarandi sumarið 2023:

Sumarlokun skrifstofu

Sumarlokun skrifstofu Flóahrepps verður eftirfarandi sumarið 2023:

10. júlí – 21. júlí:  Skrifstofa lokuð vegna sumarleyfa.

24. júlí – 27. júlí Skrifstofa opin frá 9:00-13:00. Lokað eftir kl. 13:00 vegna sumarleyfa.

31. júlí – 7. ágúst Skrifstofa lokuð vegna sumarleyfa.

Hefðbundin opnun skrifstofu verður frá og með þriðjudegi 8. ágúst.