Umhverfisnefnd Flóahrepps hvetur íbúa og aðra áhugasama til þess að plokka í Flóahreppi næstu daga í tengslum við Stóra plokkdaginn sem haldinn er um allt land sunnudaginn 26. apríl.
Það er af nægu að taka eftir veturinn og öll viljum við að sveitarfélagið okkar sé snyrtilegt og laust við fjúkandi rusl á víðavangi.
Hægt er að skilja eftir lokaða ruslapoka næstu daga og út sunnudaginn 26. apríl við ruslagáma við Þingborg, Þjórsárveg og Félagslund. Pokar skulu settir við sorptunnurnar í Félagslundi og Þingborg og sjá starfsmenn sveitarfélagsins um að koma þeim úrgangi á réttan stað.
Tökum öll þátt í að fegra umhverfið okkar!