Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Mánudaginn 6. júlí er stefnt á malbikun á Suðurlandsvegi og verður hringveginum lokað til austurs við Gaulverjabæjarveg.
Önnur akreinin verður malbikuð í einu og umferð á leið til vesturs ekur meðfram vinnusvæðinu. Hjáleið á leið austur verður um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg. Merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.83.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 22:00 mánudaginn 6. júlí
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
