Stefnt á malbikunarframkvæmdir 8. júlí

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

 

Miðvikudaginn 8. júlí er stefnt á malbikun á Suðurlandsvegi og verður hringveginum lokað til austurs við Gaulverjabæjarveg.

Önnur akreinin verður malbikuð í einu og umferð á leið til vesturs ekur meðfram vinnusvæðinu. Hjáleið á leið austur verður um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg. Merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.83.

 

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 07:00 til kl. 17:00 miðvikudaginn 8. júlí

 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.