Sleifin - árleg samkoma kvenfélaganna í Flóahreppi

Kæru kvenfélagskonur í Villingaholti, Gaulverjabæ og aðrar konur í Flóahreppi.

Ykkur er hér með boðið á Sleifina 17,maí kl. 20 í Þingborg en Sleifin er árleg samkoma kvenfélaganna þriggja í Flóahreppi. Þann 5 mars síðastliðinn varð kvenfélag Hraungerðishrepps 90 ára og af því tilefni langar okkur að halda upp á daginn með ykkur þann 17.maí og bjóða til fagnaðar með skemmtilegri dagskrá. Fordrykkur og veitingar í boði og drykkir til sölu.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja Kvenfélag Hraungerðishrepps.