Plokkum um helgina!

Vegna þess að jörð var þakin snjó í Flóahreppi síðustu helgi þá frestaðist plokkdagurinn.

Við hvetjum fólk til að plokka í kringum sig um leið og hægt er en um helgina verður hægt að  skilja eftir lokaða ruslapoka við sorpílátin í félagsheimilunum Þingborg, Félgslundi og Þjórsárveri og sveitarfélagið sér um að koma því sorpi á gámastöð.

Gott er að flokka plastið sér og setja í sér poka og almennt í sér poka. Minnum einnig á grenndargámana fyrir málm og gler við Þingborg (koma í Félagslund á næstu dögum).