Nýjar reglur um endurgreiðslur vegna aðgangs að sundstöðum

Á fundi sveitarstjórnar þann 7. apríl voru samþykktar nýjar reglur hjá sveitarfélaginu um endurgreiðslur vegna aðgangs að sundstöðum.

Á sama tíma dettur út það fyrirkomulag að börn og ungmenni 11-18 ára og eldri borgarar fái frítt á sundstöðum í Árborg þar sem Flóahreppur sagði upp þeim samstarfssamningi í kringum áramót og ákveðið að breyta fyrirkomulaginu fyrir íbúa Flóahrepps.

Nýtt fyrirkomulag vegna aðgangs barna og ungmenna að 18 ára aldri og íbúa 67 ára og eldri verður þannig að hver og einn einstaklingur á þessum aldri, með lögheimili í Flóahreppi, getur sótt um endurgreiðslu að upphæð 10.000 kr á ári til kaupa á árskortum, klippikortum eða stökum skiptum í sund hvar sem er. 

Til að fá endurgreiðslu fyrir útlögðum kostnaði þarf að koma kvittun til sveitarfélagsins og fylla inn einfalda umsókn. Hægt er að gera það rafrænt á heimasíðu Flóahrepps en einnig er hægt að koma á skrifstofu Flóahrepps með kvittun og fá aðstoð ritara Flóahrepps við að fylla út umsókn.

Þetta nýja fyrirkomulag opnar á fleiri og fjölbreyttari möguleika barna, ungmenna og eldri íbúa til sundiðkunar en markmið með nýjum reglum er að stuðla að heilsueflingum félagslegri virkni og bættri líðan. Um aukninn sveigjanleika er að ræða án þess að það leiði endilega til aukins kostnaðar þessara aldurshópa við að kaupa aðgang að sundstöðum. 

Ef gjaldskrár í sundlaugum í nágrenni Flóahrepps eru skoðaðar má sjá að eldri borgarar, börn og ungmenni geta víða keypt árskort eða 30 skipta kort undir þeirri upphæð sem sveitarfélagið endurgreiðir árlega. Mörg sveitarfélög bjóða einnig frít tí sund fyrir yngstu börnin og fyrir eldri borgara. 

Umsókn um endurgreiðslur vegna aðgangs að sundstöðum - Smellið HÉR

Reglur um undurgreiðslur vegna aðgangs að sundstöðum má nálgast hér: Smellið HÉR