Ný heimasíða Flóahrepps

Mynd: Ólafur Ingi Ólafsson Halakoti, 2023
Mynd: Ólafur Ingi Ólafsson Halakoti, 2023

Frá og með 1. febrúar er ný heimasíða Flóahrepps komin í loftið www.floahreppur.is. Hér má finna ýmsar upplýsingar um sveitarfélagið, þjónustu, stjórnsýslu, mannlíf og menningu. Markmiðið með nýrri heimasíðu er að gera fréttir, tilkynningar, umsóknir og upplýsingar aðgengilegri og einfaldari í notkun fyrir íbúa. Við notum facebook síðu Flóahrepps einnig til að deila fréttum og tilkynningum.

Það var fyrirtækið Stefna sem aðstoðaði við uppsetningu síðunnar en efnisvinnsla hefur verið byggð að hluta á eldri síðu og unnin af sveitarstjóra. Stefna þjónustar mörg sveitarfélög á Íslandi með heimasíður og bjóða góða þjónustu varðandi það sem snýr að síðunni.

Ólafur Ingi Ólafsson í Halakoti hefur verið að taka myndir fyrir okkur undanfarið en þær sem sem birtast ýmist með fréttum og á undirsíðum. Einnig er að hluta myndefni frá fyrri síðu.

Við vonum að íbúar kunni að meta nýja heimasíðu en hún verður áfram í stöðugri endurskoðun og eru allar ábendingar vel þegnar á netfangið floahreppur@floahreppur.is. Sem dæmi mun viðburðardagatal verða sett upp á næstu dögum til að bæta viðmót og upplýsingagjöf enn frekar.