Mynd: Heimir Hoffritz
Á fundi sveitarstjórnar þann 9. júlí tók sveitarstjórn fyrir niðurstöður íbúakönnunar um sameiningarmál.
Eftirfarandi er bókun sveitarstjórnar:
,,Niðurstöður íbúakönnunar um sameiningarmál
Lagðar fram niðurstöður íbúakönnunar um sameiningarmál sem lögð var fyrir samhliða sveitarstjórnarkosningum 16. maí s.l. Alls bárust 449 svör, þar af 432 gild og 17 auð eða ógild.
Niðurstöður sýna að 71,3% svarenda vilja ekki sameiningu Flóahrepps við annað sveitarfélag/sveitarfélög en 28,7% voru því fylgjandi. Í könnuninni höfðu svarendur einnig möguleika á að svara hvaða sveitarfélögum eða svæði þeir vildu helst snúa sér til varðandi sameiningu ef til sameiningar kæmi og sýna niðurstöður að flestir svarendur myndu velja sameiningu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp ef til skoðunar væri að sameina sveitarfélagið.
Sveitarstjórn Flóahrepps þakkar íbúum sveitarfélagsins fyrir góða þátttöku í íbúakönnun um sameiningarmál. Niðurstöðurnar sýna skýrt að meirihluti íbúa Flóahrepps vill ekki fara í sameiningarviðræður að svo stöddu og vilja íbúar að Flóahreppur verði áfram sjálfstætt sveitarfélag. Niðurstöðurnar gefa sveitarstjórn mikilvæga og gagnlega innsýn í viðhorf íbúa og gefa skýra mynd af þeim sveitarfélögum sem helst kæmu til greina ef slíkar umræður yrðu teknar upp síðar.
Samþykkt með 5 atkvæðum."
Mjög góð þátttaka var í íbúakönnuninni en 99% af þeim sem kusu í sveitarstjórnarkosningum á kjörstað (kjörsókn var 84,3%) tóku þátt í íbúakönnuninni. Alls bárust 449 svör, þar af voru 432 gild og 17 auð eða ógild.
Niðurstaða íbúakönnunar var afdráttarlaus þegar spurt var hvort skoða ætti sameiningu sveitarfélaga frekar:

Ofangreind niðurstaða gefur skýr skilaboð um að meirihluti íbúa Flóahrepps telur ekki ástæðu til að hefja eða halda áfram umræðu um sameiningu sveitarfélaga að svo stöddu.
Nær þrír af hverjum fjórum svarendum vilja að sveitarfélagið haldi áfram á á þeirri braut sem það hefur verið á og að ekki verði ráðist í frekari sameiningarviðræður.
Í könnuninni höfðu svarendur einnig möguleika á að svara hvaða sveitarfélögum eða svæði þeir vildu helst snúa sér til varðandi sameiningu ef til sameiningar kæmi.
Hægt var að velja fyrsta og annað val og var samantekin niðurstaða úr fyrsta og öðru vali eftirfarandi (talan sýnir samantekin stig úr fyrsta og öðru vali):
- Skeiða- og Gnúpverjahreppur (189)
- Ásahreppur (171)
- Sveitarfélagið Árborg (148)
- Uppsveitir Árnessýslu (106)
- Öll Árnessýsla (104)
- Vestursvæði Árnessýslu (Árborg, Ölfus og Hveragerði) (59)
Niðurstöður sýna að íbúar líta helst til næstu nágrannasveitarfélaga: Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Ásahrepps og Sveitarfélagsins Árborgar.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur var ekki aðeins efstur í heildarútreikningi heldur einnig algengasti fyrsti kostur svarenda og benda niðurstöður könnunarinnar því til að ef sameiningarmál kæmu til umræðu myndu íbúar fyrst horfa til þess sveitarfélags.
Niðurstöður íbúakönnunarinnar sýna skýrt að meirihluti íbúa Flóahrepps vill ekki fara í sameiningarviðræður að svo stöddu og vilja íbúar áfram að Flóahreppur verði áfram sjálfstætt sveitarfélag. Niðurstöðurnar gefa sveitarstjórn mikilvæga og gagnlega innsýn í viðhorf íbúa og gefa skýra mynd af þeim sveitarfélögum sem helst kæmu til greina ef slíkar umræður yrðu teknar upp síðar.