Næsti fundur sveitarstjórnar verður 9. júlí

Á 344. fundi sveitarstjórnar samþykkti sveitarstjórn með 5 atkvæðum að fella niður hefðbundinn fund sveitarstjórnar þann 7. júlí og halda aukafund 9. júli kl. 17:00 í Þingborg.

Jafnframt var samþykkt að fella niður hefðbundinn fund þann 21. júlí vegna sumarlokunar.

Næsti fundur sveitarstjórnar Flóahrepps verður því fimmtudaginn 9. júli kl. 17:00 í Þingborg.

Efni sem óskað er eftir að verði tekið fyrir á þeim fundi skal berast eigi síðar en kl. 12:00 mánudaginn 6. júlí.