Lokað á gámasvæðinu í Hrísmýri á Þorláksmessu

Gámasvæðið í Hrísmýri á Selfossi verður lokað laugardaginn 23. desember (Þorláksmessa).

Svæðið verður opið á milli jóla og nýárs og lengdur opnunartími fimmtudaginn 28. desember eða frá 10:00-17:00 til að mæta lokun fyrir jól.