Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. leitar eftir verkefnastjóra í stoðteymi með áherslu á mannvirkjamál. Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Við leitum af einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á byggingarmálum og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Verkefnastjóri í stoðteymi mun starfa í nánu samstarfi við byggingarfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Öryggis- og lokaúttektir byggingarleyfa og gerð vottorða.
- Stöðuskoðanir og eftirlit á framkvæmdastöðum.
- Samskipti og bréfaskrif.
- Yfirferð gagna og skráningar.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Iðnmeistari með löggildingu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og eða arkitekt, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða menntun í sambærilegum tæknigreinum á háskólastigi.
- Reynsla af byggingariðnaði er kostur.
- Þekking á byggingarreglugerð.
- Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
- Metnaður og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Starfshlutfall er 100% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, möguleiki er á fjarvinnu eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Jónsdóttir, – nanna@utu.is – 480-5560
Umsókn skal jafnframt senda á þetta sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 30. desember nk.