Íþróttaskóli fyrir börn fædd 2020-2023

Í vor verður boðið upp á íþróttaskóla fyrir börn fædd 2020-2023.

Dagsetningarnar eru 12. apríl og 26. apríl og hefst íþróttaskólinn kl. 10:00-11:00 báða dagana.

Það er ungmennafélagið Þjótandi sem heldur utanum verkefnið og verður það til prufu í vor og vonandi hægt að halda því áfram næsta haust.

Hvetjum foreldra til að mæta með börn sín - bæði gagnlegt og gaman fyrir börn og foreldra.

Það eru Guðmunda Bríet og Hanna Dóra sem ætla að sjá um íþróttaskólann.

Sjá nánar í auglýsingu: