Íbúðabyggð við Þingborg

Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúðabyggð við Þingborg var tekin janúar en framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð og lagningu veitna var gefið út 21. janúar 2026. Sveitarfélagið gerði samning við Gröfutækni ehf. um þennan verkþátt eftir útboð og yfirferð tilboða fyrir áramót.

Hugmyndir um uppbyggingu á Þingborgarsvæðinu eru ekki nýjar á nálinni en fyrsta deiliskipulag fyrir íbúðabyggð var gert á tíma Hraungerðishrepps þegar deiliskipulag ásamt greinargerð fyrir 26 lóðir voru samþykktar. Það deiliskipulag hefur svo tekið breytingum síðustu ár og var gildandi skipulag samþykkt með auglýsingu þann 13. desember 2022 og byggja yfirstandandi framkvæmdir á því skipulagi.

Þessi framkvæmd markar ákveðin tímamót í Flóahreppi þar sem nú er að verða til fyrsta þéttbýlið í Flóahreppi. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir um 20 íbúðum, þ.e. rað- og par- og einbýlishúsalóðum, við göturnar Þingbrú og Þingmóa. Þegar núverandi skipulagt verður fullbyggt verða um 60 nýjar íbúðir á svæðinu.

Við finnum fyrir miklum áhuga á þessu verkefni og allnokkrir einstaklingar og verktakar hafa sýnt áhuga og bíða eftir því að lóðaúthlutun fari fram.

Hverfið við Þingborg hefur marga kosti fyrir verðandi íbúa og má þar til dæmis nefna að hverfið er í göngufæri við leikskólann Krakkaborg sem er vel mannaður leikskóli án biðlista sem tekur inn börn frá 12 mánaða aldri. Stutt er í friðsæla náttúru og útivistarmöguleika og innan við 10 mínútna akstur í verslun og þjónustu á Selfossi. Nemendur á grunnskólaaldri eru sóttir með skólabíl í grunnskóla sveitarfélagsins, Flóaskóla, og einnig má nefna að sveitarstjórn hefur lækkað fasteignaskatt á íbúðarhús í Flóahreppi undanfarin ár en í dag er álagningarhlutfallið á íbúðarhús 0,40% af fasteignamati eignar.

Sveitarstjórn vinnur að því þessa dagana að klára úthlutunarreglur fyrir lóðir, drög að lóðarleigusamningum ásamt uppfærslu á samþykktum um gatnagerðargjald í þéttbýli, fráveitu og meðhöndlun úrgangs en allt þetta tengist uppbyggingu á þéttbýli sem ekki hefur verið til staðar áður í sveitarfélaginu.

Með uppbyggingu á Þingborgarsvæðinu er sveitarfélagið að mæta skyldum sínum um framboð á fjölbreyttum lóðum og húsnæði og ljóst að með uppbyggingu á þessu svæði er verið að skapa framboð á hentugum eignum fyrir fyrstu kaupendur og þá sem vilja minnka við sig.

Núverandi sveitarstjórn Flóahrepps hefur verið samstíga og sammála um ofangreinda uppbyggingu og erum við stolt af því að verkefnið sé loksins komið af stað af krafti.