Hugsað til framtíðar í vatnsöflun fyrir Flóahrepp

Borun tilraunaholu við Kaldárhöfða lauk í vikunni og gekk framkvæmdin vel. Fyrstu vísbendingar eru jákvæðar og gefa góð fyrirheit um að holan geti skilað miklu vatni. Nú tekur við næsti áfangi verkefnisins þar sem ráðist verður í dæluprófanir til að meta afkastagetu holunnar, stöðugleika rennslis og eiginleika vatnsleiðarans nánar.

Verkefnið er unnið í samstarfi Grímsnes- og Grafningshrepps, Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps og snýr að rannsókn á möguleikum til sameiginlegrar neysluvatnsöflunar frá Kaldárhöfða. Markmiðið er að kanna hvort svæðið geti orðið framtíðarvatnsból fyrir sveitarfélögin og þannig styrkt afhendingaröryggi, vatnsgæði og möguleika til uppbyggingar til lengri tíma.

Þörfin fyrir örugga neysluvatnsöflun fer vaxandi. Sveitarfélögin á svæðinu eru í örum vexti og vatn er einn mikilvægasti grunninnviður samfélagsins til framtíðar. Öruggur aðgangur að góðu neysluvatni skiptir máli fyrir íbúa, gesti og atvinnurekstur, auk þess sem hann er forsenda frekari uppbyggingar, þjónustu og lífsgæða á svæðinu.

Kaldárhöfði er talinn sérstaklega áhugaverður kostur vegna þess að þar eru þekktar vatnsmiklar lindir og jarðfræðilegar aðstæður sem benda til öflugs grunnvatnsstraums undir hrauninu. Svæðið hefur jafnframt mikilvægan kost þegar horft er til vatnsverndar. Um er að ræða víðfeðmt og lítt raskað svæði þar sem aðstæður til að tryggja vatnsvernd eru góðar. Slík staða er ekki sjálfgefin þegar leitað er að framtíðarvatnsbólum, enda getur reynst erfitt að finna stór vatnstökusvæði sem sameina mikið vatn, góða vatnsvernd og raunhæfa möguleika til nýtingar.

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að rannsóknum á svæðinu með það að markmiði að staðsetja grunnvatnsstrauminn, kanna gerð jarðlaga og meta hvort unnt sé að virkja vatnið með öruggum hætti. Fyrri rannsóknarboranir gáfu jákvæðar vísbendingar um vatnsleiðandi lög á skilum hrauns og undirliggjandi bergs. Tilraunaholan sem nú hefur verið boruð er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu og er henni ætlað að gefa skýrari mynd af því hversu öflugur vatnsleiðarinn er og hvaða möguleikar eru á framtíðarnýtingu.

Borunin í vikunni gekk vel og niðurstaðan lofar góðu. Holan virðist ná niður í vatnsleiðandi jarðlög og fyrstu merki benda til þess að þar geti verið um verulegt vatnsmagn að ræða. Næstu vikur verða nýttar til dæluprófana, þar sem vatni verður dælt úr holunni og fylgst náið með rennsli, vatnsborði og áhrifum í nálægum rannsóknarholum.

Dæluprófanirnar munu ráða miklu um framhald verkefnisins. Með þeim fæst betra mat á raunverulegri afkastagetu holunnar, stöðugleika vatnsrennslis og mögulegum áhrifum vatnstöku. Jafnframt verða niðurstöðurnar mikilvægur grunnur að frekara mati á vatnsvernd, leyfismálum og því hvort Kaldárhöfði geti orðið raunhæft framtíðarvatnsból fyrir svæðið.

Þótt fyrstu niðurstöður séu jákvæðar er verkefnið enn á rannsóknarstigi og endanlegar ákvarðanir verða teknar á grundvelli mælinga, faglegs mats og nauðsynlegrar leyfisvinnu. Ef niðurstöður dæluprófana staðfesta þær vísbendingar sem nú liggja fyrir gæti Kaldárhöfði orðið lykilþáttur í framtíðaruppbyggingu neysluvatnsmála fyrir sveitarfélögin þrjú.

Sveitarfélögin munu halda áfram að fylgja verkefninu eftir og upplýsa um framvindu þess þegar niðurstöður dæluprófana liggja fyrir.