Heiðursviðurkenning Afréttarmálafélags Flóa og Skeiða

Stjórn Afréttarmálafélags Flóa og Skeiða veitti heiðursviðurkenningu félagsins í fyrsta sinn.
Þau Ólafur og Kristín á Hurðabaki fengu heiðursviðurkenningu á aðalfundi afréttarmálafélags Flóa og Skeiða þann 21.apríl síðastliðinn.
 
Heiðursfélagi er sá aðili sem hefur lagt sig fram á margvíslegan hátt í þágu félagsins. Hefur af hugsjón brunnið fyrir málefnum afréttarins og innt af hendi hinum ýmsu verkum sem honum fylgja, bæði stórum sem smáum. Þau er mörg handtökin sem fólk hefur unnið í sjálfboðaliðastörfum í gegnum tíðina í kringum göngur og réttir og margvísleg önnur störf tengd félaginu. Öllum þeim aðilum erum við þakklát.
 
Þau sem hljóta heiðursviðurkenningu að þessu sinni eru:
 
  • Hafliði S. Sveinsson og Ragnhildur Helgadóttir Ósabakka.
  • Aðalsteinn Guðmundsson og Ástrún Sólveig Davíðson Húsatóftum
  • Ólafur Einarsson og Kristín Stefánsdóttir Hurðarbaki

 

Við óskum handhöfum heiðursviðurkenninngar Afréttarmálafélags Flóa og Skeiða innilega til hamingju!