Hannes Höskuldsson er íþrótta- og afreksmaður Flóahrepps 2025

Hannes Höskuldsson, íþrótta- og afreksmaður Flóahrepps 2025
Hannes Höskuldsson, íþrótta- og afreksmaður Flóahrepps 2025

Á Fjöri í Flóa þann 16. maí voru veitt verðlaun fyrir íþrótta- og afreksmann Flóahrepps 2025.

Það var Hannes Höskuldsson frá Stóra-Ármóti sem hlaut verðlaunin þetta árið. Hannes er 27 ára gamall vinstri-hornamaður sem hefur spilað með meistaraflokki Selfoss í handbolta síðan 2018. Hannes er fyrirliði meistaraflokks karla sem tryggði sér upp í Olísdeild karla síðastliðið vor. Hann var hluti af liðinu sem landaði Íslandsmeistaratitli árið 2019.

Hannes átti frábært ár í fyrra og var þriðji markahæsti leikmaður í Olís-deild karla á liðnu tímabili með 161 mark.

Hann var jafnframt valinn leikmaður ársins í handboltadeildinni á síðasta tímabili.

Hannes er flott fyrirmynd, innan vallar og utan og því tilvalið að heiðra hann í hans heimasveit.

Við óskum Hannesi innilega til hamingju með kjörið!