Jákvæð rekstrarniðurstaða 2025

Á 340. fundi sveitarstjórnar Flóahrepps var ársreikningur Flóahrepps fyrir árið 2025 tekinn fyrir í fyrri umræðu.

Sveitarstjórn bókaði eftirfarandi:

,,Ársreikningur Flóahrepps 2025 – fyrri umræða

 

Friðrik Einarsson endurskoðandi frá KPMG kynnti helstu niðurstöður Ársreiknings Flóahrepps fyrir árið 2025 sem lagður er fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta við fyrri umræðu var jákvæð um 235 milljónir kr. samkvæmt rekstrarreikningi, en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 232 milljónir kr. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.515 milljónum kr. fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.465 milljónum kr.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 1.251 milljónum kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 1.263 milljónum króna.

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkir að vísa ársreikningi Flóahrepps 2025 til endurskoðunar og síðari umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt með 5 atkvæðum."

 

Það er ljóst að rekstur sveitarfélagsins gengur vel og sveitarfélagið er vel í stakk búið að takast á við þá innviðauppbyggingu og framkvæmdir sem framundan eru svo sem viðbyggingu við Flóaskóla, áframhaldansi styrkingu vatnsveitunnar, byggingu áhaldahúss og áframhaldandi uppbyggingu á íbúðarbyggð við Þingborg svo eitthvað sé nefnt. 

Reksturinn gefur sveitarfèlaginu einnig aukið svigrúm til að bæta enn frekar þjónustu við íbúa.

Engin lántaka hefur verið á kjörtímabilinu, lán hafa verið greidd niður og á sama tíma hefur verið fjárfest í innviðum, uppbygging, viðhaldi vel sinnt og þjónusta aukin.

Árangur hefur náðst þrátt fyrir hóflegar hækkanir á gjaldskrám og lækkun á álagningu fasteignaskatts frá árinu 2022 en mesta hækkun á tekjum er vegna útsvars og eru útsvarstekjur um 17 milljónum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.  Framlög frá Jöfnunarsjóði hækka einnig en það skýrist að mestu vegna hækkunar á framlagi til Bergrisans sem er byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi.

Til viðbótar við ofangreint þá var eign seld á árinu sem skilar einskiptis tekjum upp á rúmlega 60 milljónir.

Skuldahlutfall Flóahrepps er 22% miðað við fyrri umræðu ársreiknings og skuldaviðmið er ekki sett inn í ársreikninginn þar sem það er neikvætt þ.e veltufjármunir eru umfram skuldir. 

Niðurstöður ársreiknings verða kynntar nánar eftir síðari umræðu í sveitarstjórn sem mun fara fram þann 12. maí.