Fyrsta skóflustungan að nýju húsi Umhverfis- og tæknisviðis uppsveita bs.

Fulltrúa í stjórn Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Fulltrúa í stjórn Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju húsnæði Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.

Húsið mun rísa við Hverabraut 6 á Laugarvatni og áætluð verklok eru 1. mars 2024, verktaki að bygginu hússins er Selásbyggingar ehf og jarðvinnu annast Fögrusteinar ehf.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita er byggðasamlag Ásahrepps, Flóahrepps, Bláskógabyggðar, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps og annast það skipulags- og byggingarmál fyrir sveitarfélögin.