Hér má nálgast fundardagskrá 346. fundar sveitarstjórnar sem haldinn verður þriðjudaginn 18. ágúst kl. 20:00 í Þingborg.
Sérstaklega er vakin athygli á að fundurinn er kl. 20:00 en ekki kl. 17:00. Sú breyting er gerð að höfðu samráði við alla kjörna aðalmenn í sveitarstjórn Flóahrepps.
Fundardagskrá 346. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Beint streymi frá fundi
Kl. 17:00 þennan sama dag fer fram fundur á vegum Bændasamtaka Íslands á Sviðinu á Selfossi sem ber yfirskriftina: Ísland og ESB: Hvað vitum við - Kynning á nýrri skýrslu um möguleg áhrif ESB-aðildar á landbúnað, atvinnulíf, byggðir og fæðuöryggi.
Við hvetjum íbúa Flóahrepps til þess að fjölmenna á þennan fund sem er opinn öllum sem vilja kynnar sér málefnið.