Efni: Orkugerðin, staða mála vegna lyktareyðingar og endurbóta
Til upplýsinga fyrir nágranna,
Eins og kynnt var í síðasta minnisblaði þá var lykt mæld á ýmsum stöðum í sláturtíð eins og til stóð til að sjá hámarksálag sem ólyktarkerfi þarf að ráða við. Fyrir neðan má sjá mælingarpunkta. Mestu skipti mælipunktur P11 sem er í útblæstri verksmiðjunnar.




Ofangreind tafla sýnir að núverandi kerfi er að ráða við stóran hluta af ólyktarefnum í útblæstrinum en dugar ekki til þar sem hluti þeirrar lyktar sem berst frá verksmiðjunni er inniloft úr vinnslusölum.
Í þessari og næstu viku verður lokið að endurnýja gólfið í aðal vinnslusalnum. Það auðveldar þrif og minnkar lykt.
Beðið er endanlegra teikninga af lögnum og hólfun verksmiðjunnar til að hægt sé að kaupa efni og hefja framkvæmdir á nýju ári.
Eins og áður er stefnt að fullri virkni lyktareyðingarkerfisins fyrir haust 2027.
F.h. stjórnar Orkugerðarinnar
Steinþór Skúlason stjórnarformaður