Frá 17. júní hátíðarhöldum Flóahreppi

17. júní var haldinn hátíðlegur í Flóahreppi að vanda.

Íbúar og fyrirtæki flögguðu íslenska fánanum víða í tilefni dagsins.

Sveitarstjóri Flóahrepps fór í heimsókn til íbúa sem búsettir eru í sveitarfélaginu sem verða 90 ára á árinu eða eru eldri en 90 ára. Fengu þau sumarblóm og glaðning frá sveitarfélaginu.

Gestir flykktust á hátíðar- og skemmtidagskrá í Einbúa og létu ekki stöku skúri á sig fá.

Ungmennafélagið Þjótandi stóð fyrir fótboltakeppni, leikjum og þrautum fyrir allan aldur og hin sívinsæla hreystibraut var vel nýtt.

Fjallkonan flutti ljóð og var sú stund hátíðleg fyrir framan fjölmenni í brekkunni í Einbúa.

Fjallkona ársins var Chatarina Marie Berta Krentel frá Egilsstöðum og flutti hún ljóð eftir Þórarinn Eldjárn.

Að eiga sér stað

í staðlausum heimi
eiga þar heima
eiga heima í heimi
eins og ekkert sé.
Eiga þar
varnarþing
viðspyrnu
vé.

Að eiga sér mál
í málóðum heimi
sækja í þann sjóð
sagnir
fræði
ljóð
enn og aftur
geta ekki hætt að gruna
né gleymt að muna.

Að eiga sér fjall
í flötum heimi
eiga þar skjól
skína við sól
láta sér lynda
leik regns og vinda.

Eiga þar
mark
mið
kennileiti.

Fjall
að horfa á
inn til lands
að horfa af
út yfir haf.

Fjall
kona
karl
er allt
sem
þarf
í arf.

Það er sú þrenning
sem rímar á móti menning.

Ræðumaður ársins var Helgi Stefánsson frá Vosabæ og fór hann meðal annars yfir minningar um 17. júní hátíðarhöld fyrri tíma, stórar framkvæmdir í sveitarfélaginu sem snéru að Flóaáveitunni og sjálfvirkri vatnsveitu og margt fleira. 

Umhverfisverðlaun Flóahrepps 2025 voru afhent og komu þau í hlut eigenda Kambs fyrir íbúðarhús og eigenda búsins á Brúnastöðum fyrir atvinnurekstur. 

Hörður Bjarni og Ólafur Björn tóku nokkur lög við góðar undirtektir gesta.

Að lokinni dagskrá var fallegur skrautreynir gróðursettur í Þjóðhátíðarlundi í Einbúa en sú hefð hófst á 80 ára afmæli lýðveldinsins og eru því komin tvö falleg tré í lundinn.

Dagurinn tókst vel og gleðin skein úr andlitum gesta. Nokkuð góð mæting var í Einbúa þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið með besta móti. Gestir mættu klæddir eftir veðri og létu það ekki trufla sig við að njóta saman, borða nesti og eiga góða stund á þessu frábæra útivistarsvæði í Einbúa. 

Undirbúningsnefnd 17. júní ásamt öðrum þeim sem komu að undirbúningi, fegrun svæðisins og dagskránni á einn eða annan hátt eru færðar kærar þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag.