Á 321. fundi sveitarstjórnar samþykkti sveitarstjórn að fella niður reglulegan fund þann 17. júní og halda þess í stað aukafund fimmtudaginn 26. júní kl.l 9:00 í Þingborg.
Efni sem óskað er eftir að verði tekið fyrir á fundinum skal berast eigi síðar en kl. 12:00 mánudaginn 23. júní á skrifstofu Flóahrepps eða á netfangið floahreppur@floahreppur.is
Sveitarstjórn samþykkti jafnframt að fella niður reglulegan fund þann 1. júlí. Haldinn verður reglulegur fundur í sveitarstjórn þriðjudaginn 15. júlí kl. 9:00 í Þingborg.