Auglýst er eftir verkstjórum í vinnuskóla Flóahrepps

Leitað er eftir öflugum einstaklingum sem eiga auðvelt með samskipti og hafa gaman af því að starfa með unglingum og ungmennum.

Verkstjórar undirbúa, skipuleggja og stýra sumarvinnu unglinga í sveitarfélaginu Flóahreppi og vinna með umsjónarmanni fasteigna og öðrum starfsmönnum á fasteignasviði sveitarfélagsins.

Vinnuskólinn sinnir umhirðu, ræktun, viðhaldi og fleiri verkefnum, oft í tengslum við félagsheimili, skólalóð, íþrótta- og útivistarsvæði. Verkefnin eru nokkuð fjölbreytt svo sem að gróðursetja, slá og raka, hreinsa beð, grisja skóg, mála, plokka, sópa, þrífa, smíða og leggja hellur, grasþökur eða göngustíga.

Vinnuskólinn starfar í 7 vikur í júní – júlí en gert er ráð fyrir því að verkstjórar vinni yfir lengra tímabil skv. samkomulagi.

Einnig er möguleiki á afleysingum um kvöld og helgar í félagsheimilum ef áhugi er á meiri vinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • úthluta verkefnum og leiðbeina um vinnubrögð
  • skipulagning verkefna vinnuskólans
  • gæta að og ganga frá áhöldum og vélum sem notuð eru
  • samskipti við forráðamenn unglinga
  • utanumhald og skil á vinnuskýrslum til launafulltrúa
  • samskipti og samvinna við aðra starfsmenn á fasteignasviði
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkstjóri í vinnuskóla þarf að vera fær í samskiptum ásamt því að geta verið unglingum góð fyrirmynd.
  • Vinnusemi, stundvísi og sjálfstæði í starfi eru jafnframt mikilvægir kostir.
  • Gerð er krafa um að verkstjóri hafi náð 18 ára aldri.
  • Gilt ökuskírteini.
  • Ekki er gerð formleg krafa um menntun til að gegna starfi verkstjóra í vinnuskóla en reynsla af starfi með unglingum er æskileg.
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
 
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími þann tíma sem vinnuskóli unglinga er ekki starfandi, í samráði við sveitarstjóra
  • Möguleiki á vinnu og afleysingum um helgar.
  • Sveitarfélagið getur boðið starfsmanni upp á námskeið í skyndihjálp og vinnuvernd.

Sótt er um starfið með því að senda tölvupóst á sveitarstjóra:

hulda@floahreppur.is

Umsókn skal fylgja stutt kynning á umsækjenda ásamt ferilskrá.

Umsóknarfrestur er til 31. mars 2026