AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Ásahreppur, Flóahreppur og Grímsnes- og Grafningshreppur.

 

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur aðalskipulagsbreytinga eftirfarandi skipulagsáætlana:

1. Syðri-Brú L168277; Úr frístundasvæði í verslun og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2603066

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. október 2026, að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun þriggja svæða fyrir verslun og þjónustu; tveggja svæða í landi Syðri-Brúar og eins í landi Hæðarenda. Allir reitirnir eru í nágrenni frístundabyggða, en landeigendur hafa í huga að byggja þar þyrpingar gistiskála til útleigu.

 

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:

2. Ásmundarstaðir 1 25 L187658; skilgreindar nýjar lóðir; Deiliskipulag - 2607024

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 4. nóvember 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Ásmundarstaði 1 og 3 í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst stofnun tveggja nýrra íbúðarlóða þar sem heimilt verður að byggja allt að þrjú hús á hvorri lóð.

 

3. Langholt 2 L166249; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601071

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 3. nóvember 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Langholt 2 sunnan Oddgeirshólavegar í Flóahreppi. Deiliskipulagið tekur til um 18,53 ha svæðis þar sem gert er ráð fyrir að stofna sex lóðir fyrir íbúðarhús og tengd mannvirki, meðal annars vegna áhugabúskapar. Aðkoma að lóðunum verður frá Oddgeirshólavegi.

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is 

Mál 1. – 3. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 12.11.2026 með athugasemdarfresti til og með 25.12.2026. Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is. Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

 

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita