Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt skipulagslýsing eftirfarandi skipulagsáætlunar:
1. Kílhraun land L191805; Úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði; Nýjar heitavatnsborholur; Aðalskipulagsbreyting – 2610003
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. október að kynna skipulagslýsingu á aðalskipulagi fyrir Kílhraun land L191805, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í breytingunni felst að afmarkað verði um 12,2 ha iðnaðarsvæði vegna fyrirhugaðrar heitavatnsöflunar, þar með talið nýrra heitavatnsborhola og mannvirkja og lagna þeim tengdum.
Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
2. Vaðholt 2 L219744 í landi Ormsstaða; Sameining lóða; Deiliskipulag – 2609028
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. október 2026 að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til Vaðholts 2, L219744 . Í breytingunni felst meðal annars að lóðir nr. 4, 6, 8 og 10 sameinast lóðinni Vaðholt 2.
3. Skálmholt land D L190542; Skilgreining landbúnaðarlands; Deiliskipulag – 2608025
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 20. október 2026 að kynna nýtt deiliskipulag sem nær til 9.7 ha. spildu Skálmholt úr landi D, L 190542 í landi Skálmholts í Flóahreppi. Á skipulagssvæðinu eru þrír byggingareitir. Um miðja landareignina er byggingareitur A, þar sem gert er ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum, verkstæði, geymslu og gróðurhúsi.
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga:
4. Írafossstöð; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun L168922; Deiliskipulagsbreyting – 2610021
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. október 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem felst í að núverandi 66 kV loftlína Selfosslínu 1 frá Ljósafossstöð L168926 að mastri nr. 8 sunnan Írafossstöðvar L168922 verði lögð í jörð sem 132 kV jarðstrengur. Jafnframt er gert ráð fyrir breytingum á tengivirki við Írafossstöð, þar á meðal stækkun byggingarreits fyrir tengivirkishús og að hluti Sogslínu 2 verði lagður í jörð. Deiliskipulagsbreytingin felur þannig fyrst og fremst í sér að núverandi raforkumannvirki verði endurnýjuð og hluti þeirra færður í jörð, í samræmi við fyrirhugaða uppbyggingu raforkukerfisins á svæðinu. Gert er ráð fyrir að áhrif framkvæmdarinnar verði að mestu tímabundin og að vandað verði til frágangs að framkvæmdum loknum.
5. Bergsstaðir lóð 2 L200941; Skilgreining byggingarreits og aðkomuvegur; Deiliskipulagsbreyting 2610002
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. október 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Bergsstaðir lóð 2 (L200941) í Bláskógabyggð. Lóðin var
hluti af frístundarbyggðinni Bergsstaðir (F84) en var breytt í verslunar- og þjónustulóð með aðalskipulagsbreytingunni sem var samþykkt af sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 01.04.2026 og staðfest af HMS þann 07.05.2026. Heimilt er að vera með gistingu fyrir allt að 14 gesti á lóðinni, skv. flokki I og II í reglugerð. Í skipulagsbreytingunni er skilgreindur nýr byggingareitur þar sem heimilt er að byggja allt að 3 smáhýsi til útleigu. Á lóðinni innan núverandi byggingareits er í dag 65,8 m² sumarhús til útleigu. Núverandi aðkomuvegur að lóð 3 verður færður niður fyrir nýjan byggingareit.
6. Brattholt 3 L223782; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting – 2609019
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 21. október 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Brattholts 3, L223782. Í breytingunni felst breyting á legu byggingarreits, aukning byggingarheimilda og uppfærsla skilmála til samræmis við gildandi lög og reglugerðir.
7. Sigöldustöð; Breyttir þættir og útfærsla mannvirkja; Deiliskipulagsbreyting – 2606011
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. október 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Gerð er breyting á ýmsum þáttum vegna nákvæmari útfærslu mannvirkja en þar helst eru að bætt er við lóð og byggingarreitum fyrir vinnubúðir, skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból. Nokkrum aðkomuvegum er hnikað til á uppdrætti, s.s. að aðrennslisskurði, auk þess sem hreinsivirki er bætt við á byggingarreit B1. Þá eru vatnsból og lagnir að vatnstanki sýnd á uppdrætti og vatnsverndarsvæði stækkað.
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:
8. Ljósafossskóli L168468; Skilmálabreyting; Aðalskipulagsbreyting -2403043
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. – 3. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 29.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 20.11.2026.
Mál 4. – 7. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 29.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 11.12.2026.
Mál 8. Kynnt niðurstaða sveitarstjórnar. Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is. Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sjá nánar á heimsíðu UTU: www.utu.is
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita