AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Hrunamannahreppur

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:

  1. Írafossvirkjun; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. júlí 2026, að auglýsa breytingu á aðalskipulagi sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður.

 

Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:

  1. Langholt 2 L166249; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601071

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 9. júlí 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til 18,53 ha spildu í landi Langholts 2 L166249, í Flóahreppi. Tilefnið er að landeigandi ætlar að skipta sex lóðum frá jörðinni þar sem hægt verði að eiga heimili og njóta þess sem náttúran og umhverfið býður upp á í nálægð við Hvítá og Selfoss.

 

  1. Silfurtún: Skilgreining svæðis; Deiliskipulagsbreyting – 2607012

Sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkti á fundi sínum þann 6. ágúst 2026, að kynna tillögu deiliskipulags sem tekur til Silfurtúns L166897 í Hrunamannahrepp. Í breytingunni felst að byggð verði lágreist íbúðarbyggð á landi Silfurtúns þar sem nú er garðyrkjustöð en sú starfsemi er víkjandi.

 

  1. Sigöldustöð; Breyttir þættir og útfærsla mannvirkja; Deiliskipulagsbreyting – 2606011

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 29. júní 2026, að kynna breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi. Gerð er breyting á ýmsum þáttum vegna nákvæmari útfærslu mannvirkja en þær helstu eru að bætt er við texta um frágang svæðis og bætt er við byggingarreitum fyrir skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból. Nokkrum aðkomuvegum er hnikað til á uppdrætti, s.s. að stöðvarhúsgrunni. Þá er aðkomuvegi bætt við aðrennslisskurð og hreinsivirki á byggingarreit B1. Fallpípum er bætt á uppdrátt sem og bætt er við vatnsbólum og sýndar lagnir frá þeim að vatnstanki og vatnsverndarsvæði stækkað.

Samkvæmt 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga:

  1. Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag – 2511042

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. júlí 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Klausturhóla L177600 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fyrirhugað deiliskipulag nær til hluta námusvæðis Klausturhólar (E17) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Efnistökusvæðið er um 15 ha að stærð, þar er heimiluð malarnáma fyrir allt að 150.000 m3 ásamt efnislosun. Fyrirhugað er að skipta efnistökusvæðinu í tvennt. Deiliskipulagið mun taka til nýtingu svæðisins og frágangi þess til næstu 15 ára en áætlað er að loka svæðinu 2040. Áætlað er að vinna allt að 150.000 m3 af efni úr námunni, samhliða vinnslunni verður unnið að landmótun og frágangi svæðisins. Gerð verður minniháttar breyting á aðalskipulagi þar sem efnistökusvæðinu E17 verður skipt upp í tvennt og verður nýtt svæði skilgreint fyrir norðurhlutann, eða þess hluta svæðis sem nú er innan E17 og innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi (L168258). Innan þess svæðis verður heimiluð efnistaka fyrir allt að 50.000 m3 og verður fyrir utan fyrirhugaða afmörkun á deiliskipulagssvæði. Skilmálar E17 verða því lítt breyttir, umfram það að svæðinu verður skipt upp.

 

  1. Ásgarður L168229; Aðlagað byggingarhlutfall; Deiliskipulagsbreyting – 2606051

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. júlí 2026, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til deiliskipulags frístundabyggðar í landi Ásgarðs L168229, í Grímsnesi. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall hækkar úr 0,03 í 0,05.

 

  1. Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag – 2604039

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 5. ágúst 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Hlauptungu L229945 í Bláskógabyggð. Um er að ræða skipulag fyrir áningarstað skammt frá Brúarfossi. Skipulagssvæðið er u.þ.b. 826 m² að stærð. Fyrir er á svæðinu malarplan ásamt aðkomuvegi. Landeigendur vinna að uppbyggingu innviða á svæðinu.

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

Sjá nánar hér: 

https://www.utu.is/auglysingar/skipulagsauglysing-birt-dags-20-agust-2026/

Mál 2-4. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 20. ágúst 2026 með athugasemdarfresti til og með 11. september 2026.

Mál 1. og 5-7. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 20. ágúst 2026 með athugasemdarfresti til og með 2. október 2026.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

 

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita