Bláskógabyggð, Flóahreppur og Grímsnes- og Grafningshreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
- Syðri-Brú L168277; Úr frístundasvæði í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting - 2603066
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. apríl 2026, að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun þriggja svæða fyrir verslun og þjónustu; tveggja svæða í landi Syðri-Brúar og eins í landi Hæðarenda. Stærðir reitanna eru 18.312 m2, 15.261 m2 og 37.398 m2. Allir reitirnir eru í nágrenni frístundabyggða, en landeigendur hafa í huga að byggja þar þyrpingar gistiskála til útleigu.
- Mosató 3 hótel L225133; Skógræktar- og landgræðslusvæði SL6 og reitur VÞ11; Leiðréttar stærðir og aukið byggingarmagn; Aðalskipulagsbreyting – 2601073
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl 2026, að kynna breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Breytingin tekur til skógræktar- og landgræðslusvæðis SL6 og verslunar- og þjónustureits VÞ11 í landi Hnauss 2. Með tillögunni er lagt til að afmörkun reits VÞ11 verði skýrð og reiturinn stækkaður um 0,85 ha til norðausturs inn á hluta svæðis SL6, þannig að heildarstærð reitsins verði 3,5 ha, auk þess sem byggingarmagn innan reitsins verði aukið úr 3.700 m² í 4.500 m². Jafnframt er lögun syðri fláka íbúðarsvæðis ÍB17 leiðrétt til samræmis við rétta afmörkun lóðarinnar Mosató 2.
- Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. apríl 2026 að kynna breytingu á aðalskipulagi sem tekur til Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha.
Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:
- Einiholt 2 L180525; Skilgreining svæðis, íbúðar- og atvinnuhús; Deiliskipulag – 2512017
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 1. apríl 2026, að kynna nýtt deiliskipulag eftir kynningu skipulagslýsingar, fyrir íbúðar- og útihús og atvinnustarfsemi á jörðinni Einholti 2 L180525 í Bláskógabyggð. Á jörðinni er íbúðarhús og útihús þar sem stundað er kjúklingaeldi og einnig er þar flugbraut. Landeigandi hyggst byggja nýtt íbúðarhús með bílskúr, 5 gestahús, hesthús með reiðhöll, flugskýli og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Á núverandi bæjatorfu er fyrirhugað að byggja 2 hús til viðbótar fyrir kjúklingaeldi. Í aðalskipulagi er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði og flugbraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni.
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsbreytinga:
- Ásgarður L168229, Breytt landnotkun; Frístundabyggð í landbúnaðarland; Deiliskipulagsbreyting – 2603034
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. apríl 2026, að auglýsa breytingu deiliskipulags sem tekur til Ásgarðs L168229. Breytingin felst í niðurfellingu Sólbakka úr deiliskipulaginu. Felldar verða niður 11 lóðir við Sólbakka. Skipulagssvæðið minnkar úr 218ha niður í 203ha.
- Bakkahverfi L236382 (Torfastaðir); Breytt staðsetning lóða og fækkun; Deiliskipulagsbreyting – 2507060
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 13. apríl 2026, að auglýsa breytingu deiliskipulags sem tekur til Bakkahverfis L236382 í landi Torfastaða. Skilgreindar eru fjórar nýjar frístundahúsalóðir sunnan við þegar stofnaðar lóðir við Eiríksgötu (nr. 13, 13a, 13b og 13c). Einnig er Eiríksgata nr. 12 stækkuð til suðurs um 2.732 m2, en byggingarreitur er óbreyttur. Á móti eru felldar niður allar fimm lóðir við Njálsgötu. Heildarfjöldi frístundahúsalóða innan skipulagssvæðis lækkar því um eina, úr 29 lóðum í 28. Samanlögð stærð frístundahúsalóða er óbreytt fyrir og eftir breytingu. Fallið er frá gerð Njálsgötu.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. - 4. innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 16. apríl 2026 með athugasemdarfresti til og með 8. maí 2026.
Mál 5 og 6 innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 16. apríl 2026 með athugasemdarfresti til og með 29. maí 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Nanna Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita