Áfanga náð í samgöngumálum: Framkvæmdir við Önundarholtsveg hefjast í sumar

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir endurbyggingu Önundarholtsvegar, frá Gaulverjabæjarvegi að Villingaholtsvegi. Með þeirri ákvörðun er stigið mikilvægt skref í átt að bættum samgöngum innan sveitarfélagsins.

Vegagerðin stendur að framkvæmdunum sem fela í sér endurbyggingu vegarins með styrktar- og burðarlagi þar sem þörf er á, auk þess sem lögð verður klæðning á veginn. Stefnt er að því að bjóða verkið út seinni hluta maí og að því ljúki í lok sumars 2026. Á framkvæmdatíma verður gert ráð fyrir því að umferð haldist um svæðið, þó með viðeigandi ráðstöfunum.

Árangur markvissrar vinnu

Framkvæmdirnar eru afrakstur markvissrar vinnu þar sem sveitarstjórn og íbúar hafa sameinast um að halda málinu á dagskrá. Önundarholtsvegur er einn af lykil tengivegum í samgöngukerfi Flóahrepps og hefur lengi verið talinn brýn nauðsyn að bæta ástand hans til að auka öryggi og þægindi vegfarenda. Þar kemur til dæmis inn mikilvægi vegarins sem hjáleið frá þjóðvegi 1 eins og oft hefur reynt á. Uppbygging á veginum mun einnig fækka bílum sem fara um hættuleg vegamót Villingaholtsvegar og hringvegar.

Sveitarstjórn hefur átt reglulega fundi með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar þar sem sveitarstjórn hefur fylgt fast eftir því að tengivegurinn væri endurbyggður og klæddur alla leið en til stóð að fara helming vegarins á árinu 2027. Þá lagði sveitarfélagið fram skýra og rökstudda umsögn sem fylgt var eftir á vettvangi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis fyrir nokkuru, þar sem kallað var eftir forgangsröðun framkvæmda á veginum ásamt öðrum mikilvægum samgöngubótum og öryggismálum á vegum innan sveitarfélagsins.

Mikilvægt skref fyrir samfélagið

Með endurbótunum verður vegurinn öruggari og greiðfærari, sem hefur jákvæð áhrif á samgöngur, þjónustu og byggðaþróun svæðisins í heild sinni. 

Horft til framtíðar

Með þessari framkvæmd er ljóst að markviss samvinna sveitarstjórnar, íbúa og ríkisaðila getur skilað raunverulegum árangri.

Íbúar Flóahrepps mega því hlakka til framkvæmda á komandi mánuðum og geta um leið horft til betri og öruggari samgangna til framtíðar.