17. júní í Flóahreppi

Hátíðardagskrà verður á útivistsrsvæði Ungmennafélagsins Þjótanda í Einbúa á 17. júní.

Dagskrà hefst á fótboltamóti Þjótanda kl 14:00 fyrir krakka sem voru að klára 4.-10. bekk.

Sérstök hàtíðardagskrá hefst svo kl. 15:00.

Vonandi verður veðrið gott en við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri og taka teppi með í brekkuna.
Lautarferðarstemmning þar sem hver og einn kemur með sitt nesti en einnig verður boðið upp á svaladrykki, kaffi og afmælisköku frá Flóahreppi í tilefni 20 ára afmælis sveitarfélagsins. 

Íbúar eru hvattir til að draga íslenska fánann að húni um allt sveitarféagið.