Hreinsunarátak í Flóahreppi

Árlegt hreinsunarátak verður með öðru sniði en verið hefur og helgast það fyrst og fremst af lagabreytingum í tengslum við „borgað
þegar hent er“. Ekki verður í boði að fá gáma heim á bæji á kostnað sveitarfélgasins líkt og fyrri ár en gámasvæðið okkar í Hrísmýri á
Selfossi verður opið og gjaldfrjálst fyrir íbúa okkar í eina viku þ.e ekki þarf að nýta klippikortin þessa viku.


Hreinsunarátakið stendur yfir vikuna fyrir vorhátíðina okkar Fjör í Flóa eða dagana 27. maí – 3. júní, að báðum dögum meðtöldum.

 

Opnunatímar gámasvæðisins í Hrísmýri eru eftirfarandi:
Mánudaga – föstudaga: 13:00-17:00
Laugardaga: 13:00 – 16:00
Þjónusta á starfsstöð er eftirfarandi: almennt sorp, grófur úrgangur, hreint og litað timbur, pappi og pappír, plast, járn og málmar, spilliefni og steinefni.
Hafi íbúar áhuga á að panta til sín gáma á eigin vegum þá er hægt að hafa samband við ÍGF í síma 482- 3371 eða á netfangið igf@igf.is