Tengigjald við Vatnsveitu Flóahrepps er samkvæmt auglýstri gjaldskrá og byggir á áætluðum kostnaði. Gjaldskrána má nálgast á heimasíðu Flóahrepps, www.floahreppur.is
Skilyrt er að tenging sé framkvæmd af starfsmanni á vegum Flóahrepps.
Eftir að umsókn berst og hefur verið samþykkt er reikningur sendur á netbanka umsækjanda.
Reikningur byggir á gjaldskrá og áætluðum kostnaði útfrá upplýsingum frá umsækjanda og starfsmönnum Vatnsveitu Flóahrepps.
Athugasemdir vegna reiknings berist á skrifstofu Flóahrepps.