Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 04/08/2017
20:00
Föstudagskvöldið 4. ágúst n.k. verður heitt í kolunum í Timburhólum og er tilvalið fyrir þá sem ekki fara á útihátíð að koma og blanda geði því þar ætlum við að hittast og hafa gaman. Vonumst við til að sjá sem flesta og eins og áður hefur verið kemur hver með fyrir sig á grillið en við sjáum um að hafa hita í kolunum um kl. 20:00.
Stjórn Skógræktarfélagsins Samhygðar.