Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 19/12/2016
20:00 - 23:00
Þorrablót í Þingborg 2017
Langar þig ekki að vera með í grín og glensi
Mánudagskvöldið 19. desember kl. 20:00 ætlum við að hittast í
Þingborg og fara að skoða það að setja saman einhver skemmtiatriði
fyrir Þorrablót i Þingborg. Þangað eru allir þeir sem fæddir eru árið
2003 og fyrr og langar til að vera með í því að setja saman
skemmtidagskrá fyrir þorrablót velkomnir, sama hvar þeir búa.
Eina skilyrðið er að hafa gaman að því að grínast og glensast, leika
og dansa, syngja og semja.
Allir þeir sem hafa gaman að því að leika og sprella er velkomið að
vera með. Einnig vantar t.d. tæknifólk svo sem
kvikmyndatökumenn, sviðsmenn, ljósamenn og allt það sem ykkur
langar til að gera. Og ekki síst vantar fólk með frjóa hugsun til að
semja herlegheitin. Þorrablótsnefnd Umf. Þjótanda