Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 23/12/2014
12:00 - 14:00
Að rammíslenskum sið ætlar Ungmennafélagið Vaka að standa fyrir sinni geysivinsælu skötuveislu í Þjórsárveri á Þorláksmessu og hefst borðhald kl 12:00.
Boðið verður upp á gæða skötu ásamt meðlæti og einnig verður saltfiskur á boðstólum fyrir þá sem það kjósa.
Kaffi og konfekt eftir matinn.
Verðinu er stillt í hóf eins og alltaf:
Fullorðnir 2200 kr
Börn 6 – 12 ára 500 kr
Börn yngri frítt
Gestir eru beðnir að athuga að best er að borga með reiðufé það sem posinn er oft hægvirkur þennan dag.
Það er fátt sem jafnast á við það að taka sér smá hvíld frá
jólaundirbúningnum og borða góðan mat með vinum og nágrönnum. Vonandi sjáumst við sem flest.
Stjórn Umf Vöku