Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 26/11/2016
Allan daginn
Allar konur í gamla Gaulverjabæjarhreppi,
A.T.H.
26.11.2016 verður haldið í hina árlegu, stórskemmtilegu og
ómissandi menningarferð Kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps.
Farið verður af stað kl. 12:30 frá Félagslundi og brunað til
höfuðborgarinnar, þar verður farið á svo sem eins og eitt safn til
að uppfylla hámenningarþátt ferðarinnar, síðan rölt um
miðbæinn(ef veður leyfir) og hver veit hvað við hnjótum um
þar. Svo um kl. 17 heimsækjum við hina dulmögnuðu Sigríði
Klingenberg og látum hana leiða okkur í sannleikann um það
hverjar við í raun erum. Eftir að hafa komist að því og spádóma
og spekuleranir frá hendi Sigríðar þá förum við á jólahlaðborð á
Skrúð á Hótel Sögu og endum góðan dag á góðum mat. Ekki
missa af þessari frábæru ferð sem er orðlögð fyrir
skemmtilegheit og fjör.
Kostnaður við þessa liði (rúta, safn, Sigga Kling og jólahlaðborð)
er ca. 12.000 kr. Panta þarf í ferðina ekki seinna en 17. nóv.
2016 hjá:
Möggu á Velli s: 846 9287, maggavelli@hotmail.com
Herdís Seljatungu s: 8684277, seljatun@simnet.is
Ingibjörgu s: 8488079, ingamark8@gmail.com