Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 09/12/2016
20:00 - 23:00
Frá Kvenfélagi Villingaholtshrepps:
Opið hús hjá Helenu í Skálatjörn 9. desember
Kæru kvenfélagskonur í kvf Villingaholtshrepps og aðrar áhugasamar,
Helena í Skálatjörn býður okkur heim í opið hús föstudagskvöldið 9. desember
frá kl. 20.00.
Kynning á kvenfélagsstarfinu fyrir áhugasamar utanfélagskonur, sem eru
hjartanlega velkomnar, við höfum alltaf pláss fyrir fleiri til að vinna með okkur
að góðum málefnum. Helena býður okkur upp á jólaglögg og notalega stund í
önnum dagsins, og biðjum við allar konur að koma með jólapakka og eitthvað
gott að maula með.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Sólveig formaður og Helena
Formaður Kvenfélags Villingaholtshrepps óskar kvenfélagskonum og
sveitungum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Hjartans þakkir fyrir
óeigingjarnt starf kæru konur og ómetanlegan stuðning kæru sveitungar á
liðnum árum.