Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 09/12/2016
19:00
Frá Kvenfélagi Hraungerðishrepps:
Jólafundur Kvenfélags Hraungerðishrepps verður haldinn föstudagskvöldið 9. desember kl. 19:00. Kvöldmatur verður borin fram og í kjölfarið fundum við.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Fundarsetning
Lesin fundargerð síðasta fundar
Farið yfir starfið og rætt hvað er framundan
Lesin fundargerð frá formannafundi SSK
Umræða um eignarhlut Kvenfélags Hraungerðishrepps í
Félagsheimilinu Þingborg
Inntaka nýrra félaga
Önnur mál
Eftir fund verður pakkaleikur og eru kvenfélagkonur beðnar um
að koma með pakka (kostnaður ekki meira en 1500).
Minnum á að jólakort og englar SSK eru til sölu á staðnum.
Matarhópur: Elsa Birna Björnsdóttir, Margrét Einarsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir og Ásdís Finnsdóttir.
Mætum hressar og kátar með jólaskapið meðferðis.
Jólakveðja, stjórnin