Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 01/03/2015
13:30 - 17:00
Folaldasýning
Folaldasýning fyrir félagsmenn í Hrossaræktarfélagi Hraungerðishrepps verður haldin sunnudaginn 1. mars í Sleipnishöllinni á Selfossi. Eigendur folalda eru beðnir um að vera mættir klukkan 13:00, en sýningin hefst klukkan 13:30. Ágúst Ingi tekur við skráningu í síma 899 5494 eða 482 1032, eða á netfangið agustk@visir.is og þarf skráning að hafa borist í síðasta lagi á fimmtudagskvöldið 26. febrúar. Þátttökugjald er 1500 kr á folald og greiðist á staðnum með reiðufé.
Það sem koma þarf fram við skráningu er eftirfarandi: litur, nafn, faðir, móðir, eigandi og ræktandi. Hest og merfolöldum verður skipt upp í 2 flokka. Verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki og folatollur fyrir efsta sætið. Kaffiveitingar verða seldar á staðnum gegn vægu gjaldi.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórnin