Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 29/12/2017
20:30 - 22:30
Kvenfélög Gaulverjabæjar- og Villingaholtshrepps halda
sameiginlega jólatrésskemmtun í Félagslundi föstudaginn 29.
desember klukkan 14:00.
Dagskrá verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Gestir eru
beðnir um að koma með bakkelsi á sameiginlegt hlaðborð og
mælum við með smákökum, pönnukökum og slíku sem auðvelt er
að borða með fingrum. Boðið verður upp á gos,
kaffi og te og fá börnin glaðning frá jólasveininum.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir alla eldri en 6 ára.
Um kvöldið, klukkan 20:30, verður spiluð
félagsvist í Félagslundi um veglega vinninga.
Jólakveðja til allra sveitunga.
Kvenfélögin