Dags/Tími
Dagsetning(ar) - 21/02/2016
14:00
Frá Umf. Baldri
Aðalfundur
Aðalfundur Umf. Baldurs verður haldinn í Þingborg þann 21.
febrúar klukkan 14:00. Á dagskrá fundarins eru venjuleg
aðalfundarstörf. Fyrir fundinum liggur eftirfarandi tillaga um að
leggja félagið niður og láta eignir þess renna inn í Ungmennafélagið
Þjótanda:
„Aðalfundur Umf. Baldurs haldinn í Þingborg þann 20.
febrúar 2016 samþykkir að Umf. Baldur verði lagt niður og
eignir þess gangi til Umf. Þjótanda í Flóahreppi.“
Endilega mættu og segðu þína skoðun. Hvað verður um Einbúa og
þorrablót verði félaginu slitið? Ætlunin er að allir núverandi félagar í
Umf. Baldri flytjist sjálfkrafa yfir á félagatal Þjótanda við
samrunann en öllum félagsmönnum er frjálst að óska eftir þvi að
nafn þeirra verði ekki flutt á milli. Ef það er ósk félagsmanna að
gera það ekki má hafa samband við formann Baldur Gauta í síma
8673538 eða í netfangið umfbaldurhraung@gmail.com.
Dagskrá aðalfundar
1. Fundarsetning og skipan fundarstarfsmanna
2. Fundargerð síðasta aðalfundar
3. Skýrsla stjórnar og reikningar
4. Skýrslur nefnda
5. Tillögur stjórnar lagðar fram
6. Fundarhlé
7. Verðlaunaafhending (Íþróttamaður ársins)
8. Önnur mál og umræður um tillögur og afgreiðsla
9. Fundarslit