Sorphirðuaðilar komust loksins um hluta sveitarfélagsins í dag og tóku almennt sorp þar sem hægt var. Þeir verða í efri hluta sveitarfélagsins á morgun og taka almennt sorp.
Skiljanlega eru aðstæður erfiðar við nokkra bæi og á sumum stöðum eru sorptunnur á kafi í margra metra snjósköflum. Þeir taka þar sem hægt er og biðjum við íbúa að reyna að moka frá tunnum eða færa þær til þar sem er hægt svo þeir geti tæmt.
Haldið verður svo áfram á föstudag þegar lífrænt sorp verður tekið.
Þeir sem ekki hafa tök á að komast í sorptunnur vegna snjóþunga eða hafa ekki fengið tæmingu geta alltaf farið með sorpið í söfnunarstöð í Hrísmýri á Selfossi á meðan þetta gengur yfir.