Sett inn kl. 19:00
Kæru íbúar
Nú er að hvessa aftur og fennir jafnóðum í för þar sem mestur snjór er. Það verður ekki mokað meira í kvöld og staðan metin í fyrramálið. Við vonum að hægt verði að hreinsa betur heim til íbúa í sveitarfélaginu á morgun.
Verktakar frá sveitarfélaginu eru búnir að moka flesta tengivegi og einhverja héraðsvegi og Vegagerðin mokaði Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg að Urriðafossvegi fyrr í dag.
Athugið að rekstraraðilar og einstaklingar geta samið sjálfir við verktaka ef nauðsynlegt er að moka, t.d vegna atvinnureksturs, á þeim tímum sem sveitarfélagið er ekki að sinna mokstri.
Veðurspáin næstu daga sýnir alvöru vetrarveður með frosti og töluverðum vindi einhverja daga. Við reynum að sinna snjómokstri þegar aðstæður leyfa.
Farið varlega og skoðið aðstæður vel áður en þið haldið af stað.
Bestu kveðjur,
Hulda Kristjánsdóttir sveitarstjóri Flóahrepps